Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2008

Góða veðrið

Hér er aldeilis búið að vera gott veður. Ég var svo dugleg í gær að ég hjólaði upp í Hedegaard og sótti Charlottu, Óli keyrði hjólið hennar lottu upp eftir og við hjóluðum til baka aftur. Áður en ég fór að sækja Lottu hjólaði ég út með avisinn, uss hvað ég er dugleg. Núna í dag er farið að rigna og það er nú gott fyrir gróðurinn, en við segjum það alltaf þegar það rignir og við viljum hafa sól, svo við erum ekki búin að vera mikið í garðinum í dag en fórum samt í heitapottinn og slökuðum á.

Ég var að fá að vita hvað ég get valið fyrir praktikina mína og eru það ekki spennandi staðir. Flestu staðirnir eru fyrir fatlað eða þroskahefta, fæ samt ekki að vera heima, en svo get ég líka farið í leikskóla. Ég var í þvi síðast svo ég vildi prófa eitthvað annað, helst í skóla og þá inn í bekk eða í heilsdaggsskóla en það er ekki í boði núna. það var einn staður sem ég hafði hugsað mér að sækja um á en það er klubbuinn sem krakkarnir voru í áður en við fluttum þau upp í Hedegaard. Ég fór í dag til þeirra svona rétt til að sjá og heilsa upp á þau en yfirmaðurinn sem vinnur þar tók ekki sérstaklega vel á móti mér þegar hann vissi að ég ætlaði að sækja um praktik þar svo ég er að hugsa mig um hvað ég á að gera.

Í skólanum í dag var verið að tala um fyrir hvað danir væru þekktir og viti menn, haldið þið ekki að það hafi staðið upp úr hjá fyrirlesaranum hvað danir væru kurteisir, KURTEISIR mæ es, aðra eins ókurteisi hef ég ekki kynnst, og hef ég þó komið víða. Við Bega bara hristum hausin og sögðum ekki neitt. Til viðmiðunar vóru svo tekin einhver bananalönd og þá vara þetta kannski ekki eins skrítið. Ekki var mynnst á norðurlöndin í þessu sambandi sem mér fannst skrítið. Jæja nú hef ég ekki meir að segja kannski skrifar Óli eitthvað seinna. Bið að heilsa öllum þarna Ásta.


Heitt

Já sumarið er svo sannarlega komið hérna. Í gær var 21 stigs hita á opinberamælirnum og í dag er það eins en engin sól. Við erum bara búin að vera að dúlla okkur í garðinum og taka til og þrífa hérna inni. Við hjónin erum í át-taki svonan fyrir ferðalagið okkar í júní og ekki veitir af. Blessuð börnin eru það reyndar líka og er haldið að þeim kexi, sætabrauði, ís og gosi eins og þau gera komið í sig. Heiðmundur er að fá teinana sína næstu daga og það verður bara gaman fyrir hann. Eydís er komin með nýjar spangir í neðrigóm og þetta gengur bara vel hjá henni. Á næstunni fer ég svo að vinna aftur eftir nokkurt hlé og verður fróðlegt að fylgjast með því. Annars er allt við það sama hérna, borða sofa og Falcon crest.

Gleðilegt sumar

Í dag er sumardagurinn fyrsti svo gleðilegt sumar öll sömul. Í dag er líka farið að rigna hjá okkur en undanfarina daga hefur verið sumarblíða hjá okkur, allt upp í 20 stiga hita og glampandi sól dag eftir dag. Vinkona hennar Charlottu kom í heimsókn til hennar í gær. Eitthvað eru foreldrar hennar á öðrum hitaskala en við því blessað barnið mátti ekki fara í heitapottinn og átti að vera helst í úlpu og húfu ef hún færi út. Ég sendi þær bara upp í skóla að leika með Ragnari og vini hans. Á leiðinni heim kemur svo mamma stelpunnar og sér þær vera að labba "einar" heim. Hún tekur þær upp í bílinn og kemur hingað alveg brjáluð. Auðvitað var það Ásta sem fékk skammirnar og var alveg miður sín á eftir. Það hefði nú verið gaman ef hún hefði skammað mig,hehe. En hvað er að fólki? Ég fór svo í að útskíra fyrir Charlotta að hún fengi ekki að leika við þessa stelpu meira og auðvitað kostaði það grát og allt það. Ætli ég verði svo ekki að fara að vinna eitthvað. Fór og sótti um á sóp aftur og byrja sennilega eftir nokkra daga, þegar búið er að setja sópinn saman. Ég var nú ekkert að monta mig neitt í viðtalinu, sagðist bara vita um hvað þetta snérist og að ég gæti bjargað mér ef eitthvað bilaði í vélinni og þeir buðu fín laun. Svo er farið að rigna núna, það passar þeir spáðu sólskini. Best að fara og borða eitthvað, kílóin sem ég náði af mér um daginn eru greinilega farin að sakna mín.


Helgin og stóri bænadagurinn

Jæja hér er nú aldelis búið að vera brjálað að gera í garðinum. Við erum búin að vera að reyta arfa og kantskera út um allt. Svo er nú búið að vera aldeilis gott veður þannig að við vorum til neydd til að koma heita pottinum í gang og það gekk bara mjög vel, og eru allir búinir að prófa hann. Á föstudaginn var brjálað að gera hjá okkur, við fórum til Árna og Mæju í morgunkaffi rúnstykki og kakómjólk fyrir litlu börnin ahhaha ( Óli var líka í Kakómjólkinni ) svo fórum við á loppumarkað. Þar keyptum við hitara til að hafa úti á palli ef það verður kalt, en hann kostaði bara 40 Kr. Það er alltaf áhætta að kaupa svona á markaði en það þurfi líka að kaupa stikki til að tengja hann við gaskút. Við fórum í Bauhaus og keyptum það og það kostaði ekki meira en 99 Kr. Hitarinn virkar núna mjög fínnt. Eftir loppumarkaðinn var farið heim og kíkt í garðinn og eftir smá tíma þá þurftu við að fara að hafa okkur til því okkur var boðið til Jóns Óskars og Beggu í mat. Við bjuggumst við að við færum bara fjögur, en svo þegar á það reyndi þá vildu allir koma fyrir utan Ragnar, en hann fékk ekki að vera einn heima svo við fórum öll í mat til þeirra. Maturinn vara frábær og Íslenskur sem var enn betra. Það var íslenkst lambalæri og fullt af meðlæti ooohhhh það var svo gott mmmmmhhhh og grænar baunir frá Ora. Við vorum þar til kl ca. 11:30, þá fórum við heim og allir fóru að sofa fyrir utan Óla. Ég og Eydis sofnuðum í stólnum fræga (við erum svolítið gjarnar að sofna þar það er bara útaf því við erum svo duglegar og þá verður maður svo svakalega þreyttur hahaha). Þetta var það sem ég mundi sem gerðist um helgina en við vorum annars allan tíman útí garði fyrir utan við borðuðum úti á palli laugardagskvöldinu með nýja hitarann í gangi en það var mjög hlítt en fyrir kuldaskræfurnar þurfti að hafa hitaran í gangi. Óli var að hugsa um að sækja um vinnu en hann fékk svo miklar áhyggjur um að þá missir hann af Falkon crest og það var allveg agalegt svo ég held að hann hætti bara við og verði áfram heimavinnandi húsfaðir hahah.

Vorið er komið

Hér er allt að verða vitlaust í garðinum og maður stoppar ekki allan daginn. Ég er á fullu í skólanum, það er verið að kynna okkur valfögin og núna er ég í verkstæði og náttúrufræði og það er voða gaman maður er búin að læra að smíða fuglahús og hlusta á fugla og þekkja þá, svo er ég líka búin að vera í íþróttum, músik og leiklist og það var rosa gaman svo ég veit eiginlega ekki hvað ég á að velja en ætli það endi ekki með að ég velji íþróttir það er svo gaman að leika sér þar hahaha. En nóg með það, það var svo brjálað að gera í garðinum í dag við bara reyttum og reyttum arfa, kantskárum og smíðuðum í allan dag eftir að ég kom úr skólanum og Óli var búin að horfa á faconcrest og ég var líka búin að bera út blöðin. Svo við erum búin að vera rosa dugleg í dag. Heiðmundur kom til mín áðan og spurði hvað er ég gamall er ég 15 eða 16 :). Ég hélt að maður myndi ekki gleyma hvað maður er gamall fyrr en maður er komin í 25 og yfir :). Jæja nú hef ég ekki meir að segja og ætla að fara að sofa góða nótt öllsömul Wink .

Helgin og rúmlega það

Hér er allt við það sama. Við erum mikið í garðinum og erum að reyna að gera sem mest fyrir sumarið. Nú er komið rafmagn í heitapottinn og þá vantar ekki mikið upp á að fá hann í gang. Við kíktum líka á nýja verslunarmiðstöð sem opnuð var á sunnudag í Vejle. Við fórum í skírn hjá Vinní og Rikka og var það bara betra en við þorðum að vona. Pláss fyrir nýjar myndir á síðunni er ekkert og fljótlega ræðst hvað við gerum í heimasíðumálum.

Föstudagur og allt að verða vitlausara

Hér vöknuðum við í sól og hita og bara frábært veður. Þegar allir voru farnir í skólann sinn datt ég inn í leikrit og sofnaði yfir því, mjög spennandi. Ásta var búin snemma og kom við hjá Mæju og fékk þar kaffi. Hún kom svo heim í ofvirknikassti og fór að planta trjám og plöntum og rak mig á fætur. Ég tók náttulega einn þátt af Falcon krest og dreif mig svo í að koma henni í fleirri verk og fá mér að borða. Líkamsræktin fékk frí í dag enda half slappur eftir hjólreiðar og lyftingar síðustu daga. Við fórum samt í golf í dag. Óli, Ásta, Ragnar og Charlotta fórum í golfkennsludag hjá golffélaginu hérna en Eydís horfði á. Heiðmundur var bara heima og dreifði huganum í tölvunni. Við hittum þýskukennarann hans Heiðmundar og þar fékk stóra barnið okkar ekki mikin plús. Hún sagði að lögregluhundurinn Rex myndi sennilega standa sig betur á skriflegu prófi en Heiðmundur. Seinnipartinn fór að rigna og þá varð ég að drífa mig að bera áburð á garðinn og trén og klára að saga við í arininn. Kvöldmaturinn var í boði afa sjoppu, lambakjöt af bestu gerð 2008 árgangurinn og heppnaðist það virkilega vel. Annars er margt að brjótast um í okkur þessa dagana. Ég þarf að koma mér í vinnu aftur og það verður ekki létt, enda búin að hanga heima í óra tíma og gera ekki neitt eins og alvöru húsmóðir. Myndir af okkur eru enn á leiðinn inn en vegna anna hjá herra Vald hafa þær ekki komið inn enn. Annars er allt við það sama hérna. Við alltaf jafn skít blönk og allt það. Mikið væri annars gaman ef ég hefði einn Einsa hér til að kommentera á okkur, mig vantar alveg einhvern til að snakka sammen med.  


Jæja

Í dag byrjum við á garðinum, svona til tilbreytingar. Við erum bara búin að gera voða lítið núna, erum aðalega í að finna nýjar plöntur, áburð og gosbrunn. og þá er það upptalið. Fórum í smá verslunarleiðangur og keyptum nýtt hjól handa Eydísi, voða flott náttulega, hlaupaskó á eldripartinn af fjölskyldunni og íþróttaföt í stíl og nokkrar plöntur. Ásta var líka voða góð og gaf mér nýjan farsíma. Ég kom með minn gamla inn í búðina og allir í búðinni og þá meina ég allir koma til að skoða þetta foláta símtæki og margir spurðu "hvað er þetta eiginlega". En þetta var nú bara ekta sími fyrir mig, kannski ekkert þjáll í vasa en góður í tösku og gerði sitt gagn. Við fórum á foreldrafund með kennurunum hans Ragnars og hann var bara vel heppnaður. Ragnar mun betri en við þorðum að vona og hefur tekið miklum framförum í skólanum námslega. Smiðurinn og tryggingakallinn mættu á fimmtudag og tóku út hvað á að gera og nú á bráðlega að fara gera eitthvað. Náttulega ekki eins mikið og við vildum en samt mikið. Charlotta er búin að missa enn eina tönnina og slær nú öll hraðamet í að borða spaggetí, en getur ekki sagt S. Svo var ákveðið að Gunnar Einarsson komi hingað í heimsókn í sumar, viku eftir að við komum frá útlandinu og það verður áræðanlega gaman að fá hann, allavega sagði Ragnar yes yes. Annars er sumarið alveg að koma hérna. 10 stiga hiti dag eftir dag en oft kalt á nóttunni og kisi fær því að sofa inni. þá er þetta bara orðið gott. Nýjar myndir að okkur koma vonandi fljótlega, en Einar Vald verður að redda tölvunni fyrst. Tæknin eitthvað að stríða okkur hérna.


ekki garðurinn

Til hvers að vera með síðu hérna? Allir að væla yfir að gera síðu svo það sé hægt að fylgjast með okkur hérna og hvað við erum að gera og svo nennir engin að kíkja á síðuna og kvitta, en hvað um það.

Smiðurinn ætlar að kíkja á morgun með tryggingakallinn með og það verður spennandi. Var að stússast í allan dag og það er ljóst að ef ég ætla í skóla skal ég borga allt sjálfur og það er gott að vita það. Þá er ég ekki að gera mér vonir um að fá námsstyrk. Garðurinn var alveg látin í friði í dag. Heiðmundur fór til tannsa og á að koma aftur á mánudaginn til að fá spangir. Ásta er að spá mikið í skólann sinn þessa dagana og aðalega hvernig á að setja upp og skrfa "deklaration" en henni hefur gengið ágætlega með okkar Eydísar hjálp. Ég hef því miður ekkert verið í Biblíulestri upp á síðkastið og er farin að sakna þess. Vonandi hefur Jóhann samband við mig og færir mér góðar fréttir. Nú styttist í ferðina okkar til Búlgaríu og allir eru farnir að hlakka til. Gunnar Hrafn kemur svo vonandi til okkar eftir ferðina og verður það bara gaman. Elsku vinir drullist þið svo til að kvitta á síðuna það tekur ekki svo langan tíma.


vorverkin

Það var kalt í morgun, frost og allt. Ragnar ákvað samt að hjóla í skólann en Ásta keyrði Eydisi og Charlottu í Skólabussen en Heiðmundur var veikur heima. Það var ekki við öðru að búast enda fór hann út að labba um helgina. Ég var innivið að stússast og horfði síðan á  Falcon crest enda mikill aðdáandi þeirrar seríu. Ég notaði tækifærið og nærði mig vel yfir þættinum og í miðjum þætti og í miðju áti kom Ásta heim úr skólanum. Við fórum svo í garðinn saman og héldum áfram með vorverkinn. Nú er heiti potturinn kominn á sinn stað og búið að setja niður öll trén. Nýja gangstéttinn er líka tilbúin og helluplanið fyrir framan nýja pallinn og búið að tengja allt saman sem eina heild. Svo slóum við grasið í fyrsta skipti í ár og tókum verkfærinn og allt draslið og gengum frá því. Nú verður að fara á haugana á morgun með allt sem við erum búin að klippa og skera af og drasl sem við ætlum að henda. Smiðurinn kom líka í dag en hann ætlaði að koma fyrir tveim vikum. Merkilegt hvað brandarinn um smiðinn sem rak við í hendina á sér hljómar illa á dönsku. Smiðurinn ætlar að koma aftur á miðvikudag og þá með enn einn tryggingakallinn og það verður spennandi. Annars höfum við það bara gott hérna eins og er og vonumst til að það breytist ekki. 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband