Bloggfærslur mánaðarins, maí 2008

ekkert

Mikið djö er ég orðin leiður á þessu neti hérna. Við eigum að vera með 8000 og eitthvað í hraða en þegar e´g var að prófa hann áðan þá ver hann 370 á móti 90, alveg frábært. Við erum búin að vara að borga fyrir þetta drasl í langan tíma en nú hef ég fengið nóg og er búin að afskrá okkur frá TDC, vonandi fynnum við svo bara eitthvað annað félag sem vill fá okkur í viðskipti. Við erum náttulega búin að fylgjast með fréttum frá og af Íslandi og erum alveg í mínus yfir þessu öllu, og bara aumingja allir þarna. Hér er allt við það sama og ég andlaus að skrifa svo ég skrifa bara meira næst.


Margir tala, fáir hlusta.

Ég er náttulega alveg eyðilagður eftir úrslitin í nótt. Alveg ótrúlegt hvað lið getur dottið niður á milli leikja en vonandi tökum við þetta bara á miðvikudag í staðin og sendum Spurs svo í sumarfrí um helgina. Ég laggði mig svo eftir leikinn og vaknaði svo við að Ásta var að íta við mér því hún heyrði ekkert í sjónvarðinu fyrir hrotum í mér. Ég sem var að dreyma þennan fína rottugang og snáka og annan djöfulgang, var svo að vellta fyrir mér hver væri að tala og hugsa illa til okkar hérna en hætti því svo bara því mér er alveg sama. María kíkti í kaffi til okkar í morgun en spjallaði bara við Ástu og þar sem ég hafði ekkert að segja dreiði ég huganum í tölvunni. Rikki frændi kíkti svo í kaffi og akkúrat á meðan ég var að fá mér léttan hádegisverð og kíkja á Falcon, óþolandi. Ásta var svo elskuleg að fatta strax hvað var í gangi og setja spólu í og taka þáttinn upp. Sem betur fer var ég rétt búin að borða þegar hann kom því hann var rétt búin að drepa okkur hér úr táfýlu. Ég varð að skúra arinstofuna eftir að hann fór og ekki bara einusinni heldur tvisvar, tók til öryggis aðra umferð áður en kvöldsjónvarpsdagsskráin byrjaði. Svo fékk ég vinnutilboð á netinu sem ég ætla að skoða á morgun. Svo kom smá rigning í morgun og auðvitða rétt á meðan ég var að fara með avísin, alltaf sama sagan. í kvöld ákváðum við svo að telja ú bauknum okkar, og viti menn 5519 danskar krónur síðan um jólin, sem er gott. Þá er þetta orðið gott. Gott.


Evróvisíon partý

Hér er allt að vera vitlaust út af söngvakeppninni. Við erum náttulega með teiti, matur, vín, snakk og allt tilheyrandi. Við erum búin að vera í garðinum að stússast í allan dag með smá hléum inn á milli. Við þurftum að sækja Eydísi í morgun, en hún fór í afmælisveislu í gær sem stóð í alla nótt. Hún sagðist náttulega ekki vera þreytt þegar hún var komin heim en eftir 30 sec. fyrir framan sjónvarpið var hún sofnuð. Charlotta fór svo í afmæli kl. 1100 til 1400 og á meðan náðum við góðum spretti í garðinum. Við klipptum trén, ´settum niður græðlinga, vökvuðum og kanntskárum. Já talandi um vökvun,þá hefur ekki komið dropi úr lofti síðan ég setti þakið á pallinn og það er mánuður síðan. Þetta er náttulega enn eitt metið sem við erum að upplifa hérna. Það hefur aldrei áður verið svona þurrt í maí mánuði síðam mælingar hófust. Heiðmundur kom svo heim um kl. 1500 en hann var boðin í nördapartý í Horsens eftir skóla í gær, föstudag og gisti þar. Við vonumst svo til að Íslandi gangi nú vel í keppninni í kvöld og verðum með alla tiltæka síma við hendina til að kjósa okkar fólk. Áfram Ísland.


Og þá kom sólin til að hlýja okkur

þá er komin hiti hérna aftur,sem er gott. ég vaknaði náttulega snemma eða þannig og tóka allt í gegn enda alveg að koma Evróvisíon kvöld með öllu tilheyrandi. Ásta var komin heim úr skólanum rúmlega 11 og dreif sig með avisin alveg ein á meðan ég hlussaðist fyrir framan imbakassann til að fylgjast með Falcon creast. Fórum svo í skólann og tókum hann í gegn og keyrðum til Vejle. Eins og venjulega verð að fara á MC og þar tróðu börnin í sig hammara með osti og gos með. Ragnar varð sjúkur og fékk alvarlega bíladellu þegar hann sá Lamborgíni á planinu og ætlaði að ná myndum af honum en honum til mikillar skelfingar keyrði hann í burtu um leið og við renndum í hlað. Við fórum svo í Bilka og versluðum smá. Eydís átti svo að mæta í afmæli kl. 1800 en eins og venjulega varð hún aðeins of sein. Ég las í Mogganum um daginn að farþegi einn hefði lent upp á kannt við aðra farþega í flugvél sem var á leið til Canada og datt strax Júlíus í Draumnum í hug. Þetta var nú samt ekki hann heldur einhver annar draumur sem var svo handtekinn þegar vélin lenti. Júlíus í Draumnun fór hinnsvegar í dag og er sennilega í Canada í þessum skrifuðu orðum. Þá er innbakaði laxinn tilbúin, Ásta búin að græja matinn á meðan ég hangi í tölvunni, og þá er best að njóta matarins.

Allt við það sama hér

Í dag var ég heimavinnandi. Ég gafst upp á þessari vinnu sem ég var byrjaður í og þar með er það bara af. Annars er enn kallt hérna, enda við orðin góðu vön. 15 til 18 gráður þykir orðið kallt hjá okkur, það er varla hægt að vera í garðinum nema þá í pottinum góða. Ég var að vonast eftir að heyra eitthvað frá Maggý því fyrir nokkru sendi ég henni CD með spennandi myndum og uppsýsingum um heita potta. Heiðmundur er loksins komin með spangir og hann tekur sig bara vel út með þær. Ásta er á fullu þessa dagana að lesa og æfa undir vorprófin og er í slagtogi með Bergboru, sem heitir í raun Bergþóra en danska lyklaborðið býður ekki upp á að það sé stafsett rétt, og mér skilst að þær séu að gera góða hluti saman. Við fengum bréf frá Casablanca um að það væri búið að samþykkja Charlottu sem aðalmódel fyrir Bilka-avisin og nú er hún alveg að farast úr spennu yfir því. Einar vald átti verulega góðan sprett í maraþonhlaupinu síðustu helgi og bætti sig um 25 mín. sem er gott. Til hamingju Einar Vald. Ég hef ekkert komist í Biblíulestur í tvær vikur og er svo sannarlega komin með frákvarfseinkenni. Hringdi því í Jóhann í dag og þá lá kallinn í flensu ásamt fleirum á heimilinu og virkaði frekar óhress í símann. Við hérna erum hinnsvegar við góða heilsu og aldrei verið hressari. Við segjum frá garðinum í næsta pistli, enda tíminn úti og evróvissíon að byrja.


kuldi

Núna finnst manni bara ískalt þegar það er bara 12 stiga hiti. Svona er þetta þegar maður er góðu vanur Blush. Já nú er maður farin að finna fyrir því að Óli er farinn að vinna sérstaklega á skapinu. Það er eiginlega ekki hægt að vera í kringum hann í dag útaf vinnunni. Hann hugsar ekki annað en þessa vinnu og hvernig þetta er hjá þeim og hvernig Þeir standa sig. Það er allt eitthvað svo óöruggt hjá þeim, þeir vita ekki við hvern hann á tala við og ekkert númer á verkefnunum, þar að auki er örugglega bara rassvasabókhald þar. En svona er þetta þegar maður er að byrja í nýrri vinnu og er ekki ánægður með hana. En vonandi kemst hann yfir þetta eða fær einhverja betri vinnuDevil. Æfingasvæðið sem ég á að fara í er spennandi að ég held. Það er skóli með vandræða unglinga og börn frá 8 til 18 ára. Það er líka lokuð deild þarna sem ég vonast að ég fari ekki á Halo.

Eins og þið vitið þá er ég svolítið smeik við vandræðaunglinga en ef ég lendi þar þá held ég að það gangi allavega vona ég það Grin. Nú hef ég ekki meira að segja svo ég hætti núna og ég vona að þið afsakið skriftina mína og stafsetninguna mínaTounge.  


Ný færsla

Jæja þá eru ár og dagar frá því það var skrifað hérna á síuðuna, allavega dagar og hér er búið að vera brjálað að gera. Ég er því miður farin að vinna og það er alveg hræðilegt. það eina jákvæða er að innkoman er eitthvað að hressast en annars er þetta allt voðalega leiðinlegt. Ég er alveg dottinn út úr Falcon crest og það er ekki gott. Vélin sem ég er á er ekki góð og eiginlega bara slæm. Ásta er búin að fá úthlutað æfingavinnustað og er bara nokkuð ánægð með hann. Hún fór í heimsókn þangað á föstudag til að taka staðinn út og var mjög ánægð með viðtökurnar og viðhorfið til hennar. Í dag, laugardag, er búin að vera sérstakur skóladagur í Hedergaard skóla en þá hittast foreldrar og börn og vinna saman að endurbótum á skólanum. Við fengum helling að borða og þá er ég sáttur. Eftir að við komum heim fengum við okkur kaldan bjór og allt of mikið af honum. Bjórdælan bilaði og vildi ekki lokast þannig að ég neyddist til að þamba alveg helling og setja í "nokkur" glös og könnur aður en komist var fyrir lekann. Ásta er komin með þokkalegan hnút í magann því senn líður að fyrsta árs prufunni í skólanum. Heiðmundur er kominn frá Færeyjum og hann skemmti sér konunglega þar og ekki síður í ferjunni á milli staða. Í ferjunni myndaðist strax sérstakt klósettpartý þar sem saman söfnuðust sjóveikir strákar og stelpur á öllum aldri og sterk kynni tókust með einhverjum strákum og strákum og strákum og stelpum og allr þar á milli. Ætli þau hafi verið að æla hvert upp í annað þarna? Í Færeyjum var sól allan tíman og allt var voða gaman. Heiðmundur skildi Færeyskunna vel en þorði ekki að tala við þá innfæddu. Annars er búið að vera þvílíkt vetrarveður hér undanfarið eftir einmuna tíð. Hitinn er að slefa í 15 gráður og það liggur við að við séum komin í lopapeysurnar aftur. Það er alveg að bjarga okkar að hafa heitan pott og er hann mikið notaður í þessu kuldakast. Við Jón Óakar ætluðum að hitta Einar vald um helgina, en hann í er Kauphannahöfn að taka þátt í maraþonhlaupa, en þar sem við höfðum vinnudag í skólanum komst ég ekki. Gangi þér vel Einar og vonandi setuðu persónulet met. Maraþon hlaup eru 42 km. og 195 metrar, ég nenni ekki einu sinna að keyra svo langt á scooter í einni atrennu. Nú er aldeilis tilhlökkun til Búlgaríuferðarinnar og allt að verða vitlaust. Næsta skref er að kaupa gjaldeyri og þá er bara allt komið. Vonandi verða einhverjar tennur sem passa upp í okkar á tilboði. 

Sumarið komið

Nú segja veðurfréttamennirnir að sumarið sé komið. Það er sagt þegar hitin fer yfir 25 gráður þá er sumarið komið þið getið séð þetta á www.dmi.dk ef þið hafið áhuga. Jæja nú fara prófin að nálgast og ég fékk að vita að ég ætti að fara í prófið á miðvikudeginum 25 júni. Ég var nú ekki alveg ánægð með það því ég var búin að tala um það við kennaran að ég væri að fara til Búlgaríu þann 24. Svo ég talaði við kennaran um það og hún sagði að ég þyrfti að spyrja um hvort einhver væri til í að skipta um tíma, en það vildi náttúrulega engin en eftir smá pex fékk ég einn til að skipta við mig. Ég fékk tíma á þríðjudeginum kl 12-13 þannig ég þarf að fara bara beint upp í vél. Sem betur fer förum við frá Billund og förum ekki í loftið fyrr en kl 16 svo þetta gengur allt hjá mér vonandi Undecided . Hér er búið að vera rosalega gott veður ég og Óli erum eignlega brend útaf sólinni þannig að það er gott að maður sé búin að æfa sig áður en við förum til BúlgaríuGrin . Nú eru 45 dagar þangað til við förum í flug og tennur og allir eru farinir að hlakka til. Óli ætlar að byrja að vinna á þriðjudaginn og ég verð að keyra hann fyrsta daginn til að sækja bílinn. þá verður það ekki meira í bili.

Nýtt hitamet í dag.

Hitinn á hinum opinbera mæli hér í Give fór í 26 í dag og er það met á árinu. Eftir að hafa komið liðinu í skólann og safnað kröftum laggðist ég í sólbað svona til að hita mig upp fyrir Búlgaríuferðina. Við erum búin að panta sólarolíu og erum að samstilla talstöðvarnar til að auðvelda samskiptin og spara tíma þarna í útlandinu. Annars eru aðal fréttirnar þær að amma kaka, Rikki kaka og Tryggvi kaka ætla að koma til okkar í desamber og vera yfir jólin og jafnvel áramót, sem er bara gaman. Hún sagðist vera orðin leið á þessari fjandans fýlu á milli allra á Íslandi og þá sérstaklega milli systranna Ingu og Maggýar. Annars hringdi ég í Viðar Steinarsson í dag því við þekkjum nokkra dani sem eru á leið til Íslands og vantaði gistinu og auðvitað reddaðist það. Heiðmundur er enn í Færeyjum en við höfum ekkert heyrt í honum síðan hann fór. Við vorum að spá í að sækja hann á laugardaginn til Hansdhólm en það er ekki alveg ákveðið enn. Jæja þá er best að fá sér súkkulaðikaffi, kíkja aðeins á sjónvarpið og fara svo í heitapottinn.

Í Give

Við erum bara að drukna í sól þessa dagana. hér er búin að vera sól í lengri tíma en nokkurn tíman í fyrra og miðað við veðurspána á það ekkert að breytast. Við fórum til Köben á föstudaginnn til að fá vegabréf því þau gömlu voru útrunnin. við Kjöftuðum helling í sendiráðinu en því miður var Svabbi ekki við svo við fórum ekki út að borða með honum. Við gengum um þvera og endilanga borgina og allt var voða gaman þangað til það byrjaði að rigna. En öll él styttir upp um síðir og átti það líka við þarna. Við komum heim alveg útgengin um kvöldið eftir góða ferð. Ég var að spá í að fara að hitta Einar vald í köben þegar hann hleypur þar en það er vinnudagur í skólanum hjá börnunum svo ég verð að segja pass við ferðinni. Ásta er á fullu í skólanum og gengur bara vel, held ég. Heiðmundur er í Færeyjum, lagði af stað á laugardaginn og kemur næsta laugardag, ætli hann hitti gamlan USA forseta eins og sumir? annars er allt við það sama hér.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband