kreppa

Já kreppa, og við erum með í þeim pakka. hvað er annars að ske með mig? En svarið er, ég er í niður túr eins og er. Mig vantar vinnu,  er ekki að gera góða hluti hér heima, konan að gefast upp á mér og ég á ástandinu á okkur. Ég er ekki einu sinni að sinna þessu námi vel sem ég er að verjast við. Er samt að fá góðar einkunnir í skyndiprófum en samt ekki alveg að meika það. samkvæmt nýjustu mælingum er Heiðmundur búin að bæta á sig tveimur kílóum, sem er gott og hann er að gera góða hluti í skólanum. Við fórum svo á foreldrafund með Eydísi í kvöld og það gekk allt saman vel.´Hún er alveg að standa sig og allt það, bæði félagslega og námslega. Ásta er búin að gera það gott í þessari viku í vinnunni og er bara hress. Hún ætlar að fara með liðinu á djammið á föstudag og vera í því fram eftir nóttu. Eydís er líka að fara í afmæli á föstudag og er að fara í keilu í Brande, ég verð svo að sækja hana um 10 leitið. Heiðmundur kemur svo í helgarfrí og það verður bara gaman. Við erum komin með nammidag en það er ekki búið að ákveða hvort það verði á föstudögum eða laugardögum. annars er allt við það sama hérna, hitinn er enn í tveggja stafa tölu og varla hægt að kvarta undan veðrinu þó svo að það rigni við og við. Þá er þetta að verða gott, ætla að drífa mig í þann heita og reyna að skola af mér stressið og leiðindin fyrir svefninn.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Flott hjá Heiðmundi :)

Reyndu að losna við þetta slen og koma þér út á vinnumarkaðinn. Þú verður að hætta að reyna að stjórna öllum heiminum og slappa svolítið af þá færðu kannski ágætisvinnu. Annað fólk er fífl við vitum það, leyfðu þeim að vera fífl í friði svo þú gerir ekki heimilsmeðlimi þína brjálaða á fíflaganginum á fólkinu í vinnunni (þegar þú ert búinn að fá hana) eða skólanum.

(((KNÚS))) Oj, hvað þetta var væmið.

Inga (IP-tala skráð) 23.10.2008 kl. 13:46

2 identicon

Alveg sammála þér Inga. Óli minn þú færð vinnu bráðlega, það þýðir ekkert að gefast upp.

Góða skemmtun á djamminu Ásta, ekki gera neitt sem ég mundi ekki gera.

Knús frá Vejlegenginu

Bergþóra (IP-tala skráð) 23.10.2008 kl. 17:39

3 Smámynd: Guðrún Sæmundsdóttir

Athugaðu hvort að hægt sé að komast í skammdegisljós, það eru ljósalampar sem maður horfir í,  og virka vel á allt slen og deyfð

Guðrún Sæmundsdóttir, 27.10.2008 kl. 17:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband