Evróvisíon partý

Hér er allt að vera vitlaust út af söngvakeppninni. Við erum náttulega með teiti, matur, vín, snakk og allt tilheyrandi. Við erum búin að vera í garðinum að stússast í allan dag með smá hléum inn á milli. Við þurftum að sækja Eydísi í morgun, en hún fór í afmælisveislu í gær sem stóð í alla nótt. Hún sagðist náttulega ekki vera þreytt þegar hún var komin heim en eftir 30 sec. fyrir framan sjónvarpið var hún sofnuð. Charlotta fór svo í afmæli kl. 1100 til 1400 og á meðan náðum við góðum spretti í garðinum. Við klipptum trén, ´settum niður græðlinga, vökvuðum og kanntskárum. Já talandi um vökvun,þá hefur ekki komið dropi úr lofti síðan ég setti þakið á pallinn og það er mánuður síðan. Þetta er náttulega enn eitt metið sem við erum að upplifa hérna. Það hefur aldrei áður verið svona þurrt í maí mánuði síðam mælingar hófust. Heiðmundur kom svo heim um kl. 1500 en hann var boðin í nördapartý í Horsens eftir skóla í gær, föstudag og gisti þar. Við vonumst svo til að Íslandi gangi nú vel í keppninni í kvöld og verðum með alla tiltæka síma við hendina til að kjósa okkar fólk. Áfram Ísland.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband