Helgin og stóri bænadagurinn
20.4.2008 | 21:21
Jæja hér er nú aldelis búið að vera brjálað að gera í garðinum. Við erum búin að vera að reyta arfa og kantskera út um allt. Svo er nú búið að vera aldeilis gott veður þannig að við vorum til neydd til að koma heita pottinum í gang og það gekk bara mjög vel, og eru allir búinir að prófa hann. Á föstudaginn var brjálað að gera hjá okkur, við fórum til Árna og Mæju í morgunkaffi rúnstykki og kakómjólk fyrir litlu börnin ahhaha ( Óli var líka í Kakómjólkinni ) svo fórum við á loppumarkað. Þar keyptum við hitara til að hafa úti á palli ef það verður kalt, en hann kostaði bara 40 Kr. Það er alltaf áhætta að kaupa svona á markaði en það þurfi líka að kaupa stikki til að tengja hann við gaskút. Við fórum í Bauhaus og keyptum það og það kostaði ekki meira en 99 Kr. Hitarinn virkar núna mjög fínnt. Eftir loppumarkaðinn var farið heim og kíkt í garðinn og eftir smá tíma þá þurftu við að fara að hafa okkur til því okkur var boðið til Jóns Óskars og Beggu í mat. Við bjuggumst við að við færum bara fjögur, en svo þegar á það reyndi þá vildu allir koma fyrir utan Ragnar, en hann fékk ekki að vera einn heima svo við fórum öll í mat til þeirra. Maturinn vara frábær og Íslenskur sem var enn betra. Það var íslenkst lambalæri og fullt af meðlæti ooohhhh það var svo gott mmmmmhhhh og grænar baunir frá Ora. Við vorum þar til kl ca. 11:30, þá fórum við heim og allir fóru að sofa fyrir utan Óla. Ég og Eydis sofnuðum í stólnum fræga (við erum svolítið gjarnar að sofna þar það er bara útaf því við erum svo duglegar og þá verður maður svo svakalega þreyttur hahaha). Þetta var það sem ég mundi sem gerðist um helgina en við vorum annars allan tíman útí garði fyrir utan við borðuðum úti á palli laugardagskvöldinu með nýja hitarann í gangi en það var mjög hlítt en fyrir kuldaskræfurnar þurfti að hafa hitaran í gangi. Óli var að hugsa um að sækja um vinnu en hann fékk svo miklar áhyggjur um að þá missir hann af Falkon crest og það var allveg agalegt svo ég held að hann hætti bara við og verði áfram heimavinnandi húsfaðir hahah.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt 21.4.2008 kl. 17:46 | Facebook
Athugasemdir
Það má sko ekki missa af Falcon Crest. En er verið að sýna þá í Danmörku í sjónvarpinu eða eigið þið þetta á vídjói?
Inga (IP-tala skráð) 22.4.2008 kl. 00:52
Hæ
Gaman að fylgjast með framgangi garðsins pallurinn orðinn æðislegur og þrepin niður þið eruð snillingar en Óli falcon crest !!!!
af öllum þáttum.
kv Sólborg
Sólborg (IP-tala skráð) 22.4.2008 kl. 20:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.