Lagfæring á síðu

Fjöldi fólks hefur komið að máli við okkur og kvartað yfir hversu erfitt og tímafrekt það er að kvitta á síðuna. Eftir þrotlausa yfirsetu höfum við vonandi gert bragarbót á því. Við megum ekki vera að þessu hangsi í þessu frábæra veðri og erum farin út að taka myndir. Látið okkur endilega vita ef einhverrir vankantar eru á síðunni.

Kær kveðja Ásta, Óli og börn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þið voruð ekki lengi að koma með myndir af þessum fræga garði ykkar og það sem ég sé af þessum myndum er mjög flott hjá ykkur. Ég sé svo að það var greinilega tilboð á háralit út íbúð og ég er nú bara hissa á ykkur að lita ekki köttinn líka. Annars lítið þið bara mjög vel út miðað við aldur og fyrri störf.

kv. Maggý og co 

p.s er Heiðmundur komin með teina líka? 

Maggý (IP-tala skráð) 3.4.2008 kl. 19:09

2 identicon

Já, garðurinn góði. Mikið ofsalega var gaman að sjá loksins þennan fræga garð. Og af hverju var Charlotta skilin útundan í þessu háralitunardæmi? Er bara eineltí gangi eða hvað :þ

Inga (IP-tala skráð) 4.4.2008 kl. 21:04

3 identicon

kattarræfillinn føor ekki í litun að þessu sinni en hann fór í sturtu í gær og var ekkert sérstaklega ánægður með það. Svo er búin að vera lús í skólanum hjá krökkunum þannig að við þorum ekki annað en að hafa þau með litað hár. Charlotta var dálítið spæld, en við vildum ekki lita á henni hárið.

Annars er búið að vera brjálað að gera um helgina. við fórum að vinna í skólanum í gær,föstudag, fórum svo bara snemma heim, fórum með avisinn og svo fórum við Ásta á tónleika í skólanum hennar. Börnin voru heima að leika á meðan. Jón Óskar og Begga komu svo til okkar með strákana því við ætluðum saman út að borða og á menningarhátíð á eftir. Eydís átti að passa allt liðið hér á meðan við færum og gerði það með ágætum. Við fórum á Kínastað sem var ekkert spes og við förum aldrei á aftur. eftir matinn fórum við svo i menninguna þar sem var litið á það nýjasta og heitasta í erótíkinni. Þarna var allt vaðandi í spennandi tækjum og tólum og lítið klæddum konum. Sumum konunum var áræðanlega orðið kallt því þær fóra að hella sjóð heitu kertavaxi hver á aðra. Sumar reyndust alveg tómar að innan því nokkrar af þessum fáklæddu konum innbyrgðu alveg djöfuldóm af allskyns tækjum og tólum. Eins og við var að búast eyddum við helling þarna, auðvitað allt í veitingar en fórum verulega sátt út. Jón og Begga buðu svo í coktel á eftir heima hjá sér þar sem málin voru rædd og litið á þann aragrúa varnings sem þau höfðu keypt á sýningunni. Jón var í feiknar stuði framan af en neyddist svo til að skoða augnlokin að innan þegar þau keyrðu okkur heim og sóttu drengina.  

Einar (IP-tala skráð) 5.4.2008 kl. 21:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband